Ungmennafélag Akureyrar

Eyrarskokk

UFA Eyrarskokk er hlaupahópur fyrir alla: byrjendur, áhugahlaupara og afrekshlaupara. Æfingar allt árið.

Síður í þessum hluta

Æfingaárið 2026–2027

Æfingahópar

Æfingar og gjaldskrá

Byrjendur og hófsamir hlauparar

Fullorðnir

Mán og mið · kl. 17:15

Lau · kl. 9:00

Mánaðargjald, sjá gjaldskrá.

Áhugahlauparar

Fullorðnir

Mán og mið · kl. 17:15

Lau · kl. 9:00

Mánaðargjald, sjá gjaldskrá.

Afrekshlauparar

Fullorðnir

Mán og mið · kl. 17:15

Lau · kl. 9:00

Mánaðargjald, sjá gjaldskrá.

Hlutverk deildarinnar er að efla langhlaup í bænum og greiða götu þeirra sem vilja stunda hlaup sér til ánægju og/eða til keppni.

20. mars 2003 var stofnuð langhlaupadeild innan UFA af hópi fólks sem hafði stundað hlaup saman um nokkurt skeið. Hlutverk deildarinnar er að efla langhlaup í bænum og greiða götu þeirra sem vilja stunda hlaup sér til ánægju og/eða til keppni. Deildin kemur einnig að hlaupahaldi á vegum UFA. Tíu árum síðar sameinaðist Eyrarskokk, skokkhópur sem líkamsræktarstöðin Átak hélt úti, þessum hópi sem hefur síðan þá æft undir merkinu UFA Eyrarskokk. Hópurinn hefur vaxið jafnt og þétt síðan og er í dag orðinn fjölmennur og breiður, skipaður fólki af öllum stærðum og gerðum með mismunandi hlaupastíl og hlaupahraða.

Hlutverk deildarinnar er að efla langhlaup í bænum og greiða götu þeirra sem vilja stunda hlaup sér til ánægju og/eða til keppni. Deildin kemur einnig að hlaupahaldi á vegum UFA.

UFA Eyrarskokk heldur úti hlaupaæfingum allan ársins hring. Þjálfarar setja saman æfingaáætlanir fyrir hópinn og stýra æfingum, sem eru getuskiptar þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem markmiðið er að skokka öðru hvoru til að halda sér í formi eða æfa af kappi og taka þátt í styttri og lengri hlaupum. Nánari upplýsingar um æfingar og gjaldskrá má finna hér.

Nánari upplýsingar um æfingar og starf deildarinnar veitir formaður í tölvupósti: [email protected], eða síma: 864 7422 (Rannveig)

Stjórn deildarinnar skipa:
Rannveig Oddsdóttir, formaður.
Sara Dögg Pétursdóttir, meðstjórnandi
Anna Berglind Pálmadóttir, meðstjórnandi
Anton Örn Brynjarsson, gjaldkeri

Götuhlaup UFA

Hlaupin okkar

Nánar um hlaupin

Eyrarskokk

Fréttir

Allar fréttir

Metþátttaka í Akureyrarhlaupi atNorth

300 hlauparar þeystu um götur Akureyrar í gær í Akureyrarhlaupi atNorth en það er aukning frá síðasta ári sem einnig var metár. Að venju var boðið upp á þrjár…

1 maí hlaup 2026 - úrslit og myndir!

Mikið fjölmenni var í 1. maí hlaupi UFA. Ríflega 600 hlauparar á öllum aldri hlupu af stað og þá eru ótaldir þeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn…