Síður í þessum hluta
UFA heldur á hverju ári þrjú stór frjálsíþróttamót, eitt að hausti, eitt að vori og eitt að sumri. Einnig stendur félagið fyrir grunnskólamóti fyrir 4.-7. bekk þar sem skólar bæjarins reyna með sér. Yfir sumarið eru auk þess haldin nokkur minni mót, sem eru fyrst og fremst hugsuð sem bætingamót fyrir iðkendur.

Mynd: Skapti Hallgrímsson, akureyri.net
Aprílmót UFA: Er haldið í Boganum í apríl ár hvert. Keppt er í öllum aldursflokkum í styttri hlaupum, köstum og stökkum. Þrautabraut er í boði fyrir yngstu krakkana.
Grunnskólamót UFA: Er haldið í Boganum í maí fyrir nemendur í 4.–7. bekk. Mótið fer fram á skólatíma og mæta krakkarnir til keppni með sínum kennurum. Keppt er í stigakeppni í hverjum árgangi.
Akureyrarmót UFA: Er haldið á frjálsíþróttavellinu við Skarðshlíð í júlí eða ágúst ár hvert. Keppt er í öllum aldursflokkum í helstu greinum og þrautabraut fyrir 9 ára og yngri. Undanfarin ár hefur mótið verið hluti af mótaröð FRÍ þar sem sterkasta frjálsíþróttafólk landsins keppir í stigakeppni.
Minningarmót Ólivers: Er haldið í Boganum í nóvember ár hvert. Keppt er í öllum aldursflokkum í styttri hlaupum, köstum og stökkum og yngstu krakkarnir keppa í þrautabraut.
Á heimasíðu Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) má sjá yfirlit yfir öll mót ársins: Mótaskrá - Frjálsíþróttasamband Íslands
Viltu æfa frjálsar?
Endilega sendu okkur línu!

