Aðalfundur Norðurljósanna 23. apríl nk.
Aðalfundur Norðurljósanna verður haldinn 23.04.2023 kl 20.00 í sal Einingar-Iðju (Alþýðuhúsið 2.hæð)
Norðurljósin eru félagsskapur fyrir iðkendur þríþrautar á Akureyri

Norðurljósin – Perlur Eyjafjarðar eru þríþrautardeild UFA.
Norðurljósin eru félagsskapur fyrir iðkenndur þríþrautar á Akureyri. Æfingar eru stundaðar í fjarþjálfunarformi eftir æfingaáætlun sem kemur frá Geir Ómarssyni, sem er jafnframt yfirþjálfari þríþrautardeildar Ægis. Liðsmenn æfa á þeim tíma og af þeirri ákefð sem þau velja. Margir eru að leitast eftir fjölbreyttri hreyfingu á meðan aðrir vilja æfa markvisst fyrir ákveðna keppni eða viðburði. Nokkarir skipulagðir æfingatímar eru á viku og þeir sem komast æfa þá saman, annars æfa liðsmenn á sínum tíma. Aðal markmiðið er þó að skapa jákvæðan og skemmtilegan félagsskap sem hefur áhuga á að æfa saman og deila áhuganum á hvers konar endurance íþróttum. Þá héldu Norðurljósin Íslandsmeistarakeppni í Ólympískri þríþraut að Hrafnagili sumarið 2020 og í sprettþraut 2021 og stefnt er að því að hafa viðburðinn árlegan.
Þríþrautardeildin er í nánu samstarfi við þríþrautardeild Ægis. Iðkenndur geta því skráð sig í hinar ýmsu æfingabúðir og keppnisferðir hjá Ægi. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu þeirra hér:Ægir3 Forsíða | Ægir3 (aegir3.is)
Ef þig langar að æfa með Norðurljósunum er fyrsta skrefið að senda tölvupóst á [email protected] eða hafa samband við Norðurljósin á Instagram eða Facebook. Enginn kostnaður fylgir því að vera liðsmaður Norðurljósanna, en æfingaplanið fæst með því að versla fjaraðild hjá þríþrautardeild Ægis.
Norðurljósin
Aðalfundur Norðurljósanna verður haldinn 23.04.2023 kl 20.00 í sal Einingar-Iðju (Alþýðuhúsið 2.hæð)
Sundæfingar verða 2xí viku í Sundlaug Akureyar, á þriðjudags og fimmtudagskvöldum kl.19.30-20.30. Þjálfari er sundkona úr Óðni, Elín Kata Sigurgeirsdóttir.…
Aðalfundur langhlaupa- og þríþrautardeildar var haldinn í gær, miðvikudaginn 25. febrúar.