← Allar fréttir

Elísa, Anna Berglind og Þorbergur á EM í utanvegahlaupum

UFA átti þrjá keppendur á EM í utanvegahlaupum sem fram fór í Slóveníu 5. júní.

UFA átti þrjá keppendur á EM í utanvegahlaupum sem fram fór í Slóveníu um helgina. Ísland sendi átta keppendur í lengstu vegalend keppninnar, 52 km hlaup með 2500 m hækkun.

Elísa Kristinsdóttir sem gekk til liðs við UFA í vetur náði besta árangri Íslensku keppendanna og var níunda kona í hlaupinu sem er gríðarlega góður árangur á svo sterku móti. Þorbergur Ingi var fyrstur íslensku karlanna og hafnaði í 51 sæti og Anna Berglind Pálmadóttir varð í 53 sæti í kvennakeppninni.

Þetta höfðu UFA keppendurnir um hlaupið að segja:

Elísa: "Ég átti góðan dag á fjöllum í dag í mjög skemmtilegri en krefjandi braut. Fór skynsamlega af stað en náði að vinna mig upp eftir því sem leið á hlaupið sem er virkilega skemmtilegt. Get ekki verið annað en sátt við dagsverkið og enda meðal 10 efstu á sjálfu Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum."

Þorbergur Ingi: "Var árangurinn betri en ég hélt, ég veit það ekki, ég búinn að gera þetta svo oft að það er fátt sem kemur manni þannig séð á óvart. Ég bjóst etv. ekki við að keyra þetta hratt en svo var þetta bara svo ógeðslega gaman."

Anna Berglind: "Algjör veisla - gekk laaaangt vonum framar."

Einnig var keppt í liðakeppni og varð íslenska kvennasveitin í 7. stæti af 15 liðum og karlasveitin náði 12. sæti af 23. Nánar má lesa um frammistöðu Íslensku keppendanna á heimasíðu FRÍ.

Íslenski hópurinn. Anna Berglind, Íris Anna, Andrea og Elísa í aftari röð. Friðleifur (liðstjóri), Stefán, Sigurjón, Þorbergur og Þorsteinn í fremri röð.