Frjálsar

Götuganga virkra efri ára

Síður í þessum hluta

Götuganga virkra efri ára hefur verið haldin síðan árið 2023. UFA hefur haldið gönguna í samvinnu við Akureyrabæ. Ganga er haldin í september og er frítt í gönguna. Allir 60 ára og eldri eru hvattir til að taka þátt, en gangan er tæplega 5 km löng.

Mynd: Skapti Hallgrímsson, akureyri.net

Gönguleið

Gengið er í suðurátt frá Hofi og snúið við þegar leiðin er hálfnuð og gengið til baka. Brautarverðir eru á leiðinni til að leiðbeina þátttakendum og hvetja þá til dáða.

Gönguleiðin er 4,7 km, hún liggur frá rásmarki, rétt sunnan við Hof og beygir til austurs við gatnamótin á móts við Leirunesti. Þar er göngustígurinn genginn langleiðina að brúnni, þar sem er snúningspunktur og gengið er aftur til baka sömu leið.

Tímataka

Tími allra þátttakenda sem eru með númer sýnileg framan á sér er skráður og birtur hér á síðunni skömmu eftir götugönguna. Ef einhverjir vilja ekki að mældur sé tími er einfalt að geyma númerið í vasa eða á baki í stað þess að hafa það að framan.

Verðlaun

Heppnir þátttakendur eru dregnir út og hljóta verðlaun.

Skráning og keppnisnúmer
Skráning er nauðsynleg til að eiga möguleika á útdráttarvinningi. Sækja þarf keppnisnúmer í Hof að morgni göngudags. Göngugarpar eru síðan beðnir um að skila númeri að göngu lokinni svo hægt sé að endurnýta þau.

Úrslit

Tímar allra göngugarpa frá 2023 eru í úrslitasafninu. Þar má velja ár og leita að nafni.

Úrslit Götugöngunnar

Spurningar?

Endilega sendu okkur línu.

Hafa samband