← Allar fréttir

Vetrarhlaupin að hefjast

Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 27. október. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Keppt er í stigakeppni einstaklinga og liða og er til mikils að vinna því veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigur í lok hlaupaseríunnar í vor auk útdráttarverðlauna. Bestu verðlaun hlaupanna eru þó án efa aðhaldið sem þau veita hlaupurum yfir vetrartímann og góðu stundirnar í pottinum á Bjargi eftir hlaupin og hvetjum við alla til hlaupara bæjarins til að taka þátt í þessari skemmtilegu seríu með okkur. Nánari upplýsingar um hlaupin er að finna hér.Styrktaraðilar hlaupsins eru líkt og undanfarin ár: Bjarg líkamsrækt, Halldór Ólafsson úr og skart ehf, Craft, Grok og Nói Síríus.

Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 27. október. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Keppt er í stigakeppni einstaklinga og liða og er til mikils að vinna því veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigur í lok hlaupaseríunnar í vor auk útdráttarverðlauna. Bestu verðlaun hlaupanna eru þó án efa aðhaldið sem þau veita hlaupurum yfir vetrartímann og góðu stundirnar í pottinum á Bjargi eftir hlaupin og hvetjum við alla til hlaupara bæjarins til að taka þátt í þessari skemmtilegu seríu með okkur.

Nánari upplýsingar um hlaupin er að finna hér.

Styrktaraðilar hlaupsins eru líkt og undanfarin ár: Bjarg líkamsrækt, Halldór Ólafsson úr og skart ehf, Craft, Grok og Nói Síríus.