Vel heppnað Akureyrarhaup
Akureyrarhlaup fór fram fimmtudaginn 4. júlí í frekar kuldalegu veðri. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og var ágætis þátttaka í hlaupinu en 171 hlaupari lauk hlaupinu.

Akureyrarhlaup fór fram fimmtudaginn 4. júlí í frekar kuldalegu veðri. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og var ágætis þátttaka í hlaupinu, um 170 manns. Yngsti þátttakandinn var 8 ára og sá elsti 68.
Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var keppni í hálfmaraþoni jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.
Andrea Kolbeinsdóttir ÍR og Arnar Pétursson Breiðabliki sigruðu hálfmaraþonið og eru því Íslandsmeistarar í greininin 2024. Arnar hljóp á 1:09:07 og Andrea á 1:15:59 sem er brautarmet, hennar besti tími í greinni til þessa og annar besti tími Íslenskrar konu frá upphafi.
Einnig var keppt um Íslandsmeistaratitla í aldursflokkum. Í flokki 15-39 ára voru Andrea og Arnar Íslandsmeistarar. Í flokki 40-49 ára voru það hjónin Hulda Guðný Kjartansdóttir og Páll Jóhannesson úr FH sem báru sigur úr bítum og í flokki 50-59 ára voru það Rannveig Oddsdóttir UFA og Almar Guðmundsson Stjörnunni sem lönduðu Íslandsmeistaratitlum.
Í 10 km hlaupi sigraði Anna Berglind Pálmadóttir UFA á 37:40 sem er besti tími sem náðst hefur í aldursflokki 45-49 ára kvenna og fyrstur karla var Guðmundur Daði Guðlaugsson UMFN á 34:48.
Í 5 km hlaupi sigraði Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir UFA á 17:54 sem er brautarmet og fyrstur karla var Stefán Pálsson Ármanni á 17:27.
Hér má sjá öll úrslit hlaupsins.
UFA þakkar keppendum fyrir þáttökuna, styrktaraðilum fyrir þeirra stuðning og ekki síst þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu verkefninu lið og stóðu vaktina á hlaupadag.

