Vel heppnað 1. maí hlaup
Góð þátttaka var í 1. maí hlaupi UFA sem fram fór í blíðskaparveðri í dag. Þátttakendur voru alls um 450, felstir hlupu 2 km, 29 hlupu 4 km. og 41 hljóp 10 km. Enn og aftur var að það Valsárskóli sem landaði bikarnum góða í skólakeppninni með 33% þáttöku nemenda, í öðru sæti varð Giljaskóli og Oddeyrarskóli í því þriðja.
Í 4 km. hlaupi var Elvar Freyr Pálsson fyrstur karla á tímanum 13:33, Elvar Örn Sigurðsson var annar á 14:58 og Guðmundur Otti var þriðji á 15:05. Linda Ársælsdóttir var fyrst kvenna á 17:00, önnur var Guðrún Blöndal á 17:12 og þriðja var Halldóra Sigríður Halldórsdóttir á 17:51.
Í 10 km. hlaupi var Bjartmar Örnuson fyrstur karla á 35:26 sem er persónulegt met hans og mjög góður tími, Bjarki Gíslason var annar á 38:39 og Starri Heiðmarsson var þriðji á 39:55. Í kvennaflokki var Rannveig Oddsdóttir fyrst á 38:44, Sigríður Einarsdóttir var önnur á 42:59 og Inga Vala Gísladóttir var þriðja á 45:03.

