Unglingalandsmót á Höfn
6. ágúst 2013 Þá er 16. unglingalandsmóti UMFÍ lokið. Um 1.300 keppendur alls staðar að af landinu tóku þátt í hinum ýmsu greinum. Keppendur UFA í frjálsum voru 19 talsins og stóðu sig frábærlega. Hæst ber árangur Ásgerðar Jönu Ágústsdóttur í flokki 17 ára en hún setti landsmótsmet í spjótkasti er hún kastaði spjótinu 43,88m, hún sigraði einnig í langstökki með 5,31m og hástökki með 1,57m og varð svo þriðja í 100m hlaupi á 12,88sek.
Jón Þorri Hermannsson 11ára: 1.sæti í langstökki 4,25m, 2.sæti í spjótkasti 26,91m, 2.sæti í hástökki 1,36m, 2.sæti í 600m hlaupi á 1:56,88sek, 2.sæti í 60m hlaupi á 8,87sek Rún Árnadóttir 15ára: 1.sæti í hástökki með 1,62m og 3.sæti í kúluvarpi 9,98m Kolbeinn Fannar Gíslason 12ára: 1.sæti í langstökki 4,70m, 1. sæti í hástökki 1,41 m og 3.sæti í 60m hlaupi á 8,63sek Andrea Þorvaldsdóttir 11ára: 1.sæti í 60m hlaupi á 9,22sek, 2.sæti í spjótkasti með 19,92m og 3.sæti í 600m hlaupi á 2:06,43 Sunneva Kristjánsdóttir 11ára: 1.sæti í hástökki með 1,30m María Björk Jónsdóttir 11ára: 1.sæti í kúluvarpi með 7,98m Sigþór Gunnar Jónsson 15ára: 1.sæti í spjótkasti með 48,20m Sunna Þórhallsdóttir 11ára: 2.sæti í langstökki með 3,80m og 4.sæti í 600m hlaupi á 2:08,92sek Selma Líf Þórólfsdóttir 15ára: 3.sæti í hástökki með 1,52m Sesselja Dís Heiðarsdóttir 14ára: 2.sæti í spjótkasti með 27,99m og 3.sæti í kúluvarpi með 9,24m Ninna Rún Vésteinsdóttir 11ára: 3.sæti í spjótkasti með 19,82m 11ára stelpurnar; Ninna Rún, Andrea, Sunna og Sunneva sigruðu svo 4x100m boðhlaupið í sínum flokki á 1:05,31sek Árangur hinna sem ekki náðu verðlaunasætum var einnig góður og margir að bæta sinn árangur. Eins og áður sagði er keppt í ýmsum greinum á unglingalandsmótum og t.d. sigraði Símon Þórhallsson frá UFA í stafsetningu 11-14 ára. Þetta er flott frammistaða og keppendurnir voru félaginu til sóma.

