← Allar fréttir

UFA og iðkendur fá viðurkenningar hjá FRÍ

UFA hlýtur viðurkenningu hjá FRÍ sem hópur ársins 2020.

Ungmennafélag Akureyrar - UFA, þetta litla en öfluga félag, er valið hópur ársins 2020 hjá FRÍ: "Hópur ársins er allt það frábæra fólk sem stendur á bakvið UFA. Þau sýndu mikinn dugnað í sumar þegar þau skipulögðu og héldu 94. Meistaramót Íslands með glæsibrag".

Rannveig Oddsdóttir er valin utanvegahlaupakona ársins, Hafdís Sigurðardóttir valin stökkvari ársins, Anna Sofia Rappich átti besta afrek öldunga á árinu, Baldvin Þór (sem er nú í Bandaríkjunum) fær viðurkenningu fyrir óvæntasta afrekið á árinu og Kolbeinn Höður Gunnarsson sem er alinn upp hjá UFA er spretthlaupari ársins og handhafi Jónsbikarsins.

Heldur betur FRÁBÆRT!! Við UFA-ingar eru ákaflega stolt af þessum flottu viðurkenningum og fólkinu okkar -íþróttafólkinu, frábærum þjálfurum og sjálfboðaliðunum okkar!

Til HAMINGJU öll með frækilegan og eftirtektarverðan árangur!!

Sjá nánar í máli og myndum á vef FRÍ: http://fri.is/vidurkenningar-2020/