Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska 27.-29. ágúst
Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska verður haldið 27.-29. ágúst nk. Mótið fer fram á frjálsíþróttasvæðinu við Bogann í Skarðshlíð. Mótið hefst á fimmtudegi og stendur til laugardags.
Akureyrarmót UFA og Kjarnafæði Norðlenska verður haldið 27.-29. ágúst. Boðið verður upp á þrautabraut fyrir 9 ára og yngri og keppni í helstu greinum frjálsra íþrótta í aldursflokkum; 10-11 ára, 12-13 ára, 14-15 ára og 16 ára og eldri. Mótið er öllum opið og hægt að skrá sig til miðnættis þriðjudaginn 25. ágúst.
Nánari upplýsingar um mótið, keppnisgreinar og skráningu má finna í boðsbréfi.
Nánari upplýsingar um mótið, keppnisgreinar og skráningu má finna í boðsbréfi.

