UFA í þriðja sæti í stigakeppni MÍ
28. júlí 2013 Okkar fólk stóð sig áfram vel á síðari degi Meistaramóts Íslands í dag. Þrír íslandsmeistaratitlar bættust í safnið. Hafdís og Kolbeinn Höður héldu sigurgöngu sinni áfram og unnu 200 m hlaup karla og kvenna, Kolbeinn á tímanum 21,68 sek en Hafdís á 24,18 sek, og Bjarki Gíslason varð íslandsmeistari í þrístökki með stökki upp á 14,63m.
Ásgerður Jana átti einnig góðan dag og náði öðru sæti í bæði hástökki og kúluvarpi, stökk 1,64m og kastaði kúlunni 11,14m sem er hennar besti árangur í kúluvarpi til þessa.
Þá varð Rakel Ósk í þriðja sæti í kringlukasti, kastaði 31,61m og Stefán Þór varð þriðji í þrístökki með stökki upp á 12,79. Og boðhlaupssveitirnar náðu báðar öðru sæti í 4x400m boðhlaupi.
Í stigakeppni félaga bar ÍR sigur úr bítum með 37901 stig, FH var í öðru sæti með 28139 stig og UFA í þriðja sæti með 21871 stig.

