← Allar fréttir

UFA dagurinn 3. júní

UFA dagurinn var haldinn í blíðskaparveðri fimmtudaginn 3. júní sl. Boðið var upp á þrautabraut fyrir 10 ára og yngri og spretthlaupsmót fyrir eldri en 10 ára.

UFA dagurinn var haldinn í blíðskaparveðri fimmtudaginn 3. júní sl. Boðið var upp á þrautabraut fyrir 10 ára og yngri og spretthlaupsmót fyrir eldri en 10 ára. Það mættu um 60 börn í þrautabrautina sem Unnar Vilhjálmsson þjálfari yngri flokka stjórnaði af alkunnri snilld með aðstoð frá Katrínu Sól og Regínu sem báðar æfa með meistaraflokki.

Einnig var vel mætt í spretthlaupsmótið, en boðið var upp á 60 metra, 100 metra og 200 metra hlaup auk þess sem við fengum góðan gest, Björgu Gunnarsdóttur sem gerði tilraun til að ná landsliðssæti og hljóp 800 metra. Mikið var um bætingar og gaman að sjá framfarirnar sem orðið hafa í vetur þrátt fyrir keppnisleysi vegna Covid-19. Í lok dags var öllum boðið upp á grillaðar pylsur og safa. Við höldum glöð og kát inn í sumarið sem verður örugglega fullt af ævintýrum og nýjum metum í frjálsum.

UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn UFA dagurinn

Myndir: Jenný Grettisdóttir, Guðmundur Daði Kristjánsson og Jóna Jónsdóttir