← Allar fréttir

Tobbi valinn frjálsíþróttakarl ársins hjá FRÍ

FRÍ velur á ári hverju frjálsíþróttakonu og -karl ársins. Við val á þeim er horft til árangurs á alþjóðlegum vettvangi, stöðu íþróttamanna á heimslista Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins og árangur íþróttamanna á stórmótum fullorðinna. Alls tóku 11 álit...

FRÍ velur á ári hverju frjálsíþróttakonu og -karl ársins. Við val á þeim er horft til árangurs á alþjóðlegum vettvangi, stöðu íþróttamanna á heimslista Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins og árangur íþróttamanna á stórmótum fullorðinna. Alls tóku 11 álitsgjafar þátt í vali á frjálsíþróttakonu og karli ársins 2015 og útnefndu þau Þorberg Inga Jónsson langhlaupara úr UFA og Ásdísi Hjálmsdóttur spjótkastara sem frjálsíþróttamenn ársins.

Tobbi hefur átt einstaklega gott ár og unnið hvert afrekið á fætur öðru. Má þar nefna sigur og bætinu á brautarmeti í Laugavegshlaupinu auk sigra í mörgum öðrum fjallahlaupum sem hann tók þátt í. Hæst ber þó árangur hans á heimsmeistaramóti í ofurfjallahlaupi sem haldið var í Annesy í Frakklandi í lok maí þar sem hann náði 9. sæti.

UFA óskar Tobba innilega til hamingju með titilinn og stórkostlegan árangur á árinu.