← Allar fréttir

Tobbi og Rannveig fyrst í vetrarhlaupi UFA

Fyrsta vetrarhlaup þessa vetrar fór fram í gær, í fínasta veði en svolítilli hálku.

Fyrsta vetrarhlaup þessa vetrar fór fram í gær, í fínasta veði en svolítilli hálku. 27 hlauaprar voru mættir til leiks og hlupu hefðbundinn 10 km hing frá Bjargi. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark á 35:22, önnur í mark og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:39. Annar karla var Snæþór Aðalsteinsson á 42:36 og þriðji var Aðalsteinn Svan Hjelm á 43:04. Önnur kvenna var Sigríður Björg Einarsdóttir á 47:02 og þriðja var Elma Eysteinsdóttir á 47:25. Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

Næsta vetrarhlaup verður laugardaginn 29. nóvember.