Tobbi með brautarmet í fyrsta Vetrarhlaupinu
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram í gærkvöldi og tóku rúmlega þrjátíu hlauparar þátt. Þorbergur Ingi Jónsson lét leiðindahálku ekki á sig fá og bætti brautarmetið sitt um 2 sekúndur, hljóp á 33:46.
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram í gærkvöldi og tóku rúmlega þrjátíu hlauparar þátt. Þorbergur Ingi Jónsson lét leiðindahálku ekki á sig fá og bætti brautarmetið sitt um 2 sekúndur, hljóp á 33:46. Annar karla var Ágúst Bergur Kárason á 39:16 og þriðji var Sævar Helgason á 39:40. Fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 45:02, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 47:02 og þriðja Rakel Káradóttir á 49:02. Í liðakepninni var það sveit Gunnu og drullusokkanna sem náði bestum samanlögðum tíma, enda fyrstu þrír menn saman í þeirri sveit. Í öðru sæti liðakeppninnar var sveit UFA og í þriðja sæti Sérsveit Sonju.

