Tobbi með brautarmet á Laugaveginum
Þorbergur Ingi Jónsson langhlaupari úr UFA sigraði í Laugavegshlaupinu sem fram fór í gær og bætti brautarmetið um 12 mínútur.
Þorbergur Ingi Jónsson langhlaupari úr UFA sigraði í Laugavegshlaupinu sem fram fór í gær. Þorbergur hljóp leiðina, sem er um 55 km löng, á 4:07:47 og bætti þar með fyrra brautarmet Björns Margeirssonar um 12 mínútur. Glæsilegur árangur hjá Þorbergi.

