← Allar fréttir

Strætó á æfingu

Strætóskólinn hvetur nemendur grunnskóla til nýta strætó til og frá frjálsíþróttaæfingum!

Strætóskóli Vistorku, Orkuseturs og Símeyjar hvetur nemendur grunnskóla til nýta strætó til og frá frjálsíþróttaæfingum. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að kynna sér strætóleiðir og leiðbeina iðkendum um hvaða leiðir henta best. Gott væri að fylgja krökkunum fyrstu ferðirnar ef þau eru óörugg.

Akureyrarbær stefnir áfram á að vera með frístundastrætó fyrir yngstu bekki grunnskóla sem eru 1-4. bekkur því er hér lögð áhersla á eldri iðkendur sem eru í 5. bekk og eldri.

Strætóskólinn hefur sett upp tillögur að vali á strætóferðum fyrir krakka í mismunandi hverfum, með hliðsjón af frjálsíþróttaæfingum 11-14 ára. Tillöguna má finna hér!