Sólarlagshlaup UFA
Góður hópur fólks tók þátt í sólarlagsferð UFA upp í Hlíðarfjall í gærkvöldi. Lagt var upp frá Bjargi kl. 22:00 og gengið, skokkað eða hjólað upp að skíðahóteli. Sólarlagið naut sín ekki sökum skýjafars en milt var í veðri og gott útivistarveður. Að ferðinni lokinni létu þátttakendur þreytuna líða úr sér í heitu pottunum á Bjargi.

