Skráning hafin í Akureyrarhlaup
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks verður haldið næstkomandi laugardag. Hlaupið er almenningshlaup þar sem boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmarþon. Keppni í hálfmaraþoni er í ár einnig Íslensmeistaramót í þeirri vegalengd. UFA sér um framkvæmd hlaupsins sem jafnframt er fjáöflun fyrir félagið. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt með því að hlaupa með eða fara út og hvetja hlauparana áfram (biðjum fólk þó að fara ekki á rúntinn um hlaupaleiðina í þeim tilgangi, heldur leggja bílnum og finna sér góðan stað við hlaupaleiðina til að standa og hvetja). Skráning er hafin á hlaupasíðunni en einnig verður hægt að skrá sig í Átaki á föstudaginn milli kl. 16 og 20. Á heimasíðu hlaupsins má sjá allar nánari upplýsingar um hlaupið
18. júní 2013

