Silfurleikar – Íslandsmet hjá Tobías
Tobías Þórarinn Matharel sló íslandsmet í þrístökki innanhúss í flokki 13 ára pilta á Silfurleikunum í gær

Tobías Þórarinn Matharel sló íslandsmet í þrístökki innanhúss í flokki 13 ára pilta á Silfurleikunum í gær. Hann stökk 11,63 m en fyrra met átti Kristján Hagalín Guðjónsson 11,53 m.
Silfurleikar ÍR voru haldnir í Laugardalshöll í gær, laugardaginn 19. nóvember. Nafn mótsins vísar í afrek Vilhjálms Einarsson þegar hann fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu.
Þar mættu til leiks 350 ungmenni 17 ára og yngri og átti UFA 25 iðkendur í þeim hópi. Mikið var um bætingar, persónulega sigra og verðlaun og ber þar hæst fyrrnefnt íslandsmet Tobíasar.
Árangur iðkenda UFA í einstökum greinum má sjá hér
Til hamingju krakkar með árangurinn!






Myndir: Unnar Vilhjálmsson, Sveinbjörg Smáradóttir og Hulda Berglind Árnadóttir

