← Allar fréttir

Rífandi stemning í Akureyrarhlaupi Mizuno og atNorth

Það var gríðargóð stemning í Akureyrarhlaupi Mizuono og atNorth sem fór fram í gærkvöldi í blíðskaparveðri. 240 hlauparar mættu til leiks og var gaman að sjá fjölbreytnina í hópnum. Margir af okkar sterkustu götuhlaupurum voru mættir til leiks, en líka nýliðar í íþróttinni, börn í fylgd með foreldrum og fullbúnir lögreglu- og slökkviliðsmenn. Yngstu þátttakendurnir voru 12 ára og sá elsti 78 ára og vill svo skemmtilega til að þeir hlupu 5 km á svipuðum tíma eða í kringum 30 mínútur.

Keppni í hálfmaraþoni var Íslandsmeistaramót í þeirri vegalengd. Arnar Pétursson úr Breiðablik og UFA konan Rannveig Oddsdóttir báru sigur úr bítum þar og eru Íslandsmeistarar í hálfmaraþoni 2025. Timi Arnars var 1:09:33 og tími Rannveigar 1:25:34 sem er jafnframt aldursflokkamet í flokki 50-54 ára kvenna. Rannveig er enginn nýgræðingur í greininni og var að taka þátt í sínu 25. Akureyrarhlaupi í gær!

Í 10 km hlaupi sigraði Íris Anna Skúladóttir í kvennaflokki á 37:06 og Freyr Karlsson í karlaflokki á 34:32. Í 5 km hlaupi var Anna Berglind Pálmadóttir fyrst kvenna í mark á 18:18 og Freyr Karlsson var fyrstur karla á 34:32. Öll úrslit úr hlaupinu er hægt að sjá á timataka.is

UFA þakkar styrktaraðilum hlaupsins fyrir þeirra framlag og sjálfboðaliðum fyrir óeigingjarnt starf í þágu hlaupsins.