← Allar fréttir

Rannveig og Þorbergur íslandsmeistarar í hálfmaraþoni

22. júní 2013 Meistaramót í hálfmaraþonhlaupi fór fram í Akureyrarhlaupinu í morgun og voru það UFA félagarnir Rannveig Oddsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson sem lönduðu Íslandsmeistaratitlum kvenna og karla. Þorbergur hljóp á 1:15:48 sem er nokkuð frá hans besta tíma og Rannveig á tímanum 1:23:10 sem nokkurra sekúndna bæting á hennar besta tíma.

Félagar úr nýstofnuðum hlaupahópi UFA Eyrarskokks voru áberandi í hlaupinu og voru sigursælir. UFA Eyrarskokks konur einokuðu hálfmaraþon kvenna, en þar var Sigríður Einarsdóttir í öðru sæti og Sonja Sif Jóhannsdóttir í þriðja sæti.

Aðrir UFA Eyrarskokkarar sem náðu á pall voru Ágúst Bergur Kárason sem var annar í 5 km hlaupi, Guðrún Gísladóttir sem var fyrst í 5 km hlaupi, Guðrún Arngrímsdóttir sem var önnur í 10 km hlaupi og Rakel Káradóttir sem var þriðja í 10 km hlaupi. Margir félagar voru líka að bæta sín persónulegu met og ljóst að innan hópsins eru margir efnilegir hlauparar á uppleið.

ÍR-ingar komu sterkir inn í 10 km hlaupinu en Ármann Eydal Albertsson og Sæmundur Ólafsson voru fyrstir karla og þriðja í heildina og fyrst kvenna var Martha Ernstsdóttir.