Rannveig með brautarmet í Laugavegshlaupinu
Líkt og undanfarin ár tók góður hópur hlaupara úr UFA Eyrarskokki þátt í Laugavegshlaupinu í ár.

Líkt og undanfarin ár tók góður hópur hlaupara úr UFA Eyrarskokki þátt í Laugavegshlaupinu sem haldið var 18. júlí. Aðstæður voru góðar á hlaupadag, svolítið kalt í upphafi hlaups og vindur en vindáttin hagstæð og hlýnaði þegar leið á hlaupið. Margir persónulegir sigrar voru unnir, þeir sem höfðu hlaupið áður náðu flestir bætingum og Eyrarskokkarar röðuðu sér í verðlaunasæti í bæði heildarkeppninni og aldursflokkum.
Rannveig Oddsdóttir sló brautarmet kvenna þegar hún hljóp á 5:00:29 og Anna Berglind Pálmadóttir náði fjórða besta tíma kvenna frá upphafi 5:05:53 -og öðrum besta tíma íslenskra kvenna. UFA Eyrarskokkarar eiga þar með brautarmet Laugavegshlaupsins í bæði karla- og kvennaflokki því Þorbergur Ingi Jónsson á brautamet karla. Þorbegur Ingi náði hins vegar ekki að ljúka keppni í hlaupinu að þessu sinni vegna meiðsla.
Rannveig og Anna Berglind tóku jafnframt fyrsta og annað sæti í aldursflokki 40-49 ára kvenna, Ingólfur Björn Gíslason var fyrstur karla í aldursflokknum 50-59 ára á tímanum 5:11:16 og Sigríður Björg Einarsdóttir var önnur í aldursflokki 50-59 ára kvenna á 6:09:39. UFA Eyrarskokk bar einnig sigur úr bítum í sveitakeppni kvenna með kvennasveitinni UFA-fjallaskvísur sem skipuð var Rannveigu, Önnu Berglindi, Sigríði og Evu Birgisdóttur.

