← Allar fréttir

Rannveig götuhlaupari ársins 2012 í kvennaflokki

Á uppskeruhátíð FRÍ, 27.okt. sl. voru útnefndir götuhlauparar ársins 2012. Almennings- og víðavangshlaupanefnd FRÍ stóð fyrir valinu á íþróttamönnunum. Götuhlaupari ársins í kvennaflokki er Rannveig Oddsdóttir UFA. Rannveig náði næst besta tíma íslenskrar konu frá upphafi í maraþonhlaupi þegar hún hljóp á 2:52:39 í Berlín 30.sept sl. Hún varð einnig önnur í hálfmaraþoninu í ágúst er hún hljóp á 1:23:14 sem er hennar besti tími í hálfu maraþoni.Götuhlaupari ársins í karlaflokki er Kári Steinn Karlsson í Breiðabliki.

Á uppskeruhátíð FRÍ, 27.okt. sl. voru útnefndir götuhlauparar ársins 2012. Almennings- og víðavangshlaupanefnd FRÍ stóð fyrir valinu á íþróttamönnunum.

Götuhlaupari ársins í kvennaflokki er Rannveig Oddsdóttir UFA.

Rannveig náði næst besta tíma íslenskrar konu frá upphafi í maraþonhlaupi þegar hún hljóp á 2:52:39 í Berlín 30.sept sl.

Hún varð einnig önnur í hálfmaraþoninu í ágúst er hún hljóp á 1:23:14 sem er hennar besti tími í hálfu maraþoni.

Götuhlaupari ársins í karlaflokki er Kári Steinn Karlsson í Breiðabliki.