← Allar fréttir

Ragúel með aldursflokkamet í langstökki

UFA iðkendur fjölmenntu á Héraðsleika HSÞ á Laugum um helgina. Blíðskaparveður var báða mótsdagana og náðu margir góðum árangri.

UFA iðkendur fjölmenntu á Héraðsleika HSÞ á Laugum um helgina. Blíðskaparverður var báða mótsdagana og náðu margir góðum árangri. Ragúel Pino Alexandersson sýndi enn og aftur afburðaframmistöðu. Hann sigraði í öllum keppnisgreinum í sínum aldursfokki og setti aldursflokkamet í langstökki 13 ára stráka þegar hann stökk 5,68 m. Glæsileg frammistaða hjá þessum unga íþrótamanni og ljóst að hann hefur alla burði til að komast í fremstu röð.

Fleiri áttu góða keppnisdaga og margir UFA iðkendur komust á verðlaunapall. Andrea Þorvaldsdóttir vann t.d. fjórar greinar í sínum aldursflokki; 60 m hlaup, 400 m hlaup, 60 m grindahlaup og langsökk, varð önnur í hástökki og kúluvarpi og þriðja í spjótkasti.

Þá vann Sunna Þórhallsdóttir í hástökki, varð önnur í 60 m grindahlaupi og langstökki og þriðja í 60 m hlaupi.

Selma Þórólfsdóttir sigraði í 100 m grindahlaupi og hástökki -og bætti sinn persónulega árangur í hástökki um 8 cm.

Fjölmargir aðrir UFA iðkendur voru að gera góða hluti. Öll úrslit úr mótinu má sjá á mótaforriti FRÍ.