← Allar fréttir

Nóvembermót UFA 2012

Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk.

Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk.

Ungmennafélag Akureyrar býður til UFA móts í Bogunum á Akureyri sunnudaginn 11. nóvember kl. 10.45 – 16.00. Mótið er öllum opið en keppt er í flokkum frá 9 ára og yngri upp í karla- og kvennaflokk. Húsið opnar kl. 10.15.

Keppnisflokkar, keppnisgreinar

Endanlegur tímaseðill verður gefinn út í síðasta lagi að kvöldi föstudagsins 9. nóvember.

9 ára og yngri

Þrautabraut að hætti þjálfara UFA

10 - 11 ára Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.

12 – 13 ára Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, kúluvarp, 600m og skutlukast.

14 - 15 ára Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, Stangarstökk, kúluvarp og 600m.

16 ára og eldri Keppnisgreinar:

60m grindahlaup, 60m, langstökk, hástökk, stangarstökk, kúluvarp, 600m

Fyrirkomulag keppninnar

Hástökk og stangarstökk:

Hver keppandi má einungis fella sex sinnum í keppninni.

Kúluvarp og langstökk allir flokkar:

Í öllum aldursflokkum eru fjórar tilraunir á hvern keppanda.

Hlaupagreinar:

Í hlaupum gilda bestu tímar til sæta en ekki verða hlaupin úrslitahlaup.

Tímaseðill:

Keppni hefst kl. 10.45 og lýkur kl. 16.00

Verðlaun:

9 ára og yngri: Allir fá verðlaunapening fyrir þátttöku í þrautabrautinni.

11 ára og eldri: Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta sæti í hverri grein í hverjum aldursflokki.

Skráning:

Skráningar berist í gegnum mótaforrit FRÍ (www.fri.is) eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 9. nóvember.

Skráningargjöld:

2000 kr á hvern keppanda 15 ára og yngri – innifalið: Pizzuveisla

2500 kr á hvern keppanda 16 ára og eldri – innifalið: Pizzuveisla

Skráningargjöld greiðist fyrirfram inn á reikning UFA: 1145-26-7701, Kt. 520692-2589. Kvittun sendist á [email protected]

Óskað er eftir að hvert félag geri upp í einni heild fyrir keppendur sína.

Nánari upplýsingar um mótið fást hjá Gunnari Gíslasyni sími 892 1453– [email protected]