← Allar fréttir

Norðurland í 3.sæti í Bikarkeppni FRÍ

Spennandi og jafnri keppni í Bikarkeppni FRÍ lauk með sigri FH, sem fékk 105 stig, A-lið ÍR fékk 100,5 stig og lið Norðurlands fékk 88 stig og varð í 3. sæti. Karlaliðið lenti í 3. sæti og kvennaliðið í 2. sæti með 48 stig aðeins 6 stigum á eftir A-liði ÍR sem fékk 54 stig. Helsti árangur liðsmanna Norðurlands var eftirfarandi: Hafdís Sigurðardótir UFA sigraði langstökk en hún stökk 5,96m og varð önnur í 60m hlaupi á 7,85sek. Kristján Godsk Rögnvaldsson UMSE sigraði 800m hlaup á 1;54,16sek Björn Margeirsson UMSS sigraði 1500m hlaup á 4;12,11sek. Bjarki Gíslason UFA varð annar í stangarstökki, stökk 4,40m. Örn Dúi Kristjánsson UFA varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 8,83sek og í 3. sæti í hástökki með stökk upp á 1,85m Heiðrún Dís Stefánsdóttir UFA varð önnur í 800m hlaupi á 2;22,13sek. Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 49,76sek.Rakel Ósk Björnsdóttir UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 60,23sek.Sveinborg Daníelsdóttir UMSE varð í 3. sæti í stangarstökki en hún stökk 2,85m Guðbjörg Sveinsdóttir UMSE varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,54sek. Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS varð í 3. sæti í 60m hlaupi á 7,32sek. Kvennasveit Norðurlands varð svo í öðru sæti í 4x400m boðhlaupi á 3;57,58 sek og karlasveitin í 4x400m boðhlaupi varð í 3. sæti á 3;26,29sek.

Spennandi og jafnri keppni í Bikarkeppni FRÍ lauk með sigri FH, sem fékk 105 stig, A-lið ÍR fékk 100,5 stig og lið Norðurlands fékk 88 stig og varð í 3. sæti. Karlaliðið lenti í 3. sæti og kvennaliðið í 2. sæti með 48 stig aðeins 6 stigum á eftir A-liði ÍR sem fékk 54 stig.

Helsti árangur liðsmanna Norðurlands var eftirfarandi:

Hafdís Sigurðardótir UFA sigraði langstökk en hún stökk 5,96m og varð önnur í 60m hlaupi á 7,85sek.

Kristján Godsk Rögnvaldsson UMSE sigraði 800m hlaup á 1;54,16sek

Björn Margeirsson UMSS sigraði 1500m hlaup á 4;12,11sek.

Bjarki Gíslason UFA varð annar í stangarstökki, stökk 4,40m.

Örn Dúi Kristjánsson UFA varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 8,83sek og í 3. sæti í hástökki með stökk upp á 1,85m

Heiðrún Dís Stefánsdóttir UFA varð önnur í 800m hlaupi á 2;22,13sek.

Kolbeinn Höður Gunnarsson UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 49,76sek.

Rakel Ósk Björnsdóttir UFA 3. sæti í 400m hlaupi á 60,23sek.

Sveinborg Daníelsdóttir UMSE varð í 3. sæti í stangarstökki en hún stökk 2,85m

Guðbjörg Sveinsdóttir UMSE varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,54sek.

Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS varð í 3. sæti í 60m hlaupi á 7,32sek.

Kvennasveit Norðurlands varð svo í öðru sæti í 4x400m boðhlaupi á 3;57,58 sek og karlasveitin í 4x400m boðhlaupi varð í 3. sæti á 3;26,29sek.