Minningarmót Ólivers - Íslandsmet hjá Önnu Sofiu Rappich
Anna Sofia Rappich sló á mótinu íslandsmet í sínum aldursflokki, 60-64 ára, í tveimur greinum, í langstökki og 60m hlaupi.

Minningarmót Ólivers var haldið af UFA, þann 30. nóvember 2024 í Boganum. Mótið var vel sótt af norðlenskum frjálsíþróttakrökkum sem og góðum hópi keppenda að sunnan sem þykir gott og gaman að sækja mótin okkar heim þó svo um lengri veg sé að fara. Um 170 krakkar mættu til leiks, flestir voru iðkendur UFA en einnig mættu góðir hópar, þrátt fyrir slæma veðurspá, frá Samherjum í Eyjafjarðarsveit, Skagfirðingum, Húnvetningum og Þingeyingum, auk þeirra sem komu lengra að, frá ÍR, Fjölni og Selfossi.
Minningarmótið er haldið í nafni Ólivers Einarssonar sem lést af slysförum árið 2017, aðeins 12 ára gamall. Hann var einn af efnilegustu frjálsíþróttaiðkendum UFA, mikill íþróttamaður, orkubolti og gleðigjafi. RUB23 gaf öll verðlaun mótsins í minningu hans.
Yngstu hóparnir tóku þátt í þrautabraut, sem Unnar Vilhjálmsson stjórnaði af af sinni alkunnu snilld með hjálp foreldra. Þar kepptu þau m.a. í spretthlaupi, grindahlaupi, hindrunarhlaupi, langstökki, skutlukasti og enduðu með reipitogi við foreldra þar sem úrslitin voru tvísýn. Krakkarnir voru kappsfull og höfðu bæði þau og foreldrar þeirra gaman af.
Anna Sofia Rappich sló á mótinu íslandsmet í sínum aldursflokki, 60-64 ára, í tveimur greinum, í langstökki og 60m hlaupi. Anna stökk 4,16 m í langstökki, fyrra met var 3,80 m, það átti Árný Hreiðarsdóttir frá árinu 2019. Anna hljóp 60m á 9,02 sek, fyrra met var 9,68 sek, það átti Árný Hreiðarsdóttir einnig frá árinu 2019.
Í aldursflokkum 10 ára og eldri var keppt í sex til sjö greinum, 60m hlaupi, 60m grindahlaupi, 400m/600m/800m hlaupi, hástökki, langstökki, kúluvarpi og skutlukasti. Keppendur stóðu sig reglulega vel og mikið var um persónulegar bætingar. Öll úrslit má finna á eftirfarandi hlekk: Þór mótaforrit
Stjórn UFA þakkar keppendum kærlega fyrir árangursríkt og skemmtilegt mót. Stjórnin sendir einnig hjartans þakkir til allra starfsmanna sem að mótinu komu, sem eru boðnir og búnir að aðstoða félagið hvenær sem kallið kemur, sem og þjálfara félagsins sem efla iðkendurna okkar á æfingum og styðja við afrek þeirra á mótum sem þessu.




