MÍ 15-22 ára - mótsmet og íslandsmeistaratitlar
Mögnuð meistaramótshelgi er að baki þar sem UFA mætti með 19 manna lið í Laugardalshöll

Mögnuð meistaramótshelgi er að baki þar sem UFA mætti með 19 manna lið í Laugardalshöll á Meistaramót Íslands í 15-22 ára flokkí í frjálsum íþróttum. Félagið hefur ekki mætt með svo stóran hóp á þetta mót í mörg ár, ef það hefur þá einhvern tímann gerst.
Tobías Þórarinn Matharel setti mótsmet bæði í langstökki og þrístökki 15 ára pilta. UFA átti tvöfaldan sigur í 60m og þrístökki 15 ára stráka og risabætingar í nokkrum greinum. Í stuttu máli þá var uppskeran 22 verðlaun í heild.
6 gull
Arnar Helgi Harðarsson með gull í 60m og 300m
Brynjar Páll með gull í hástökki
Tobías náði í gull í langstökki og þrístökki
Egill Atlason Waagfjörð sem keppir fyrir Umf.Kötlu gull í langstökki
7 silfur
Tobías með silfur í 60m
Brynjar Páll silfur í langstökki
Arnar Helgi silfur í þrístökki
Guðrún Hanna silfur í hástökki 15 ára
Aníta Lind náði silfri í hástökki 16-17 ára
Egill Atlason silfur í þrístökki
Boðhlaupssveit 15 ára drengja varð síðan í öðru sæti í 4x200m
9 brons
ALexander í kúlu (6kg)
Pétur Friðrik í 60m
Hreggviður Örn í 2000m
Arnar Helgi í langstökki
Garðar Atli í kúlu
Elena Soffía í kúlu
Sigurlaug Anna í langstökki
Anna Líf Diegó í stangarstökki
Tryggvi Sveinn sem keppir fyrir HHF í 60m grind
Við afrekin má bæta 31 persónulegum bætingum sem er aðalástæða þess að við stundum þessa íþrótt
Þjálfarar liðsins voru að vonum syngjandi kátir með helgina og árangurinn. Ari, yfirþjálfari hópsins hafði meðal annars þetta um mótið að segja: Það er sannur heiður að þjálfa þessa flottu unglinga sem skildu allt eftir á hlaupabrautinni um helgina. Andinn var mikill í hópnum og eins og gárungarnir lýstu okkur þá mættum við og migum í öll horn í Laugardalshöllinni, við áttum svæðið !!!
Nánari upplýsingar um úrslit mótsins má finna í Þór-mótaforritinu en myndirnar hérna fyrir neðan sýna brot af frábærri stemningu á mótinu!
Ljósmyndari Jóna Finndís og Unnar Vilhjálmsson






























