← Allar fréttir

Metþátttaka í Gamlárshlaupi UFA

Gamlárshlaup UFA fór að venju fram að morgni gamlársdags.

Gamlárshlaup UFA fór að venju fram að morgni gamlársdags. Aðstæður til hlaupa voru ekkert sérstakar að þessu sinni fljúgandi hálka og svolítill vindur. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og fjölmenntu sem aldrei fyrr í hlaupið og var hlaupið það fjölmennasta til þess með um 130 þátttakendur.

Í 10 km hlaupi kom Jörundur Frímann Jónasson fyrstur karla í mark á 41:35, annar var Helgi Rúnar Pálsson á 43:41 og þriðji var Þröstur Már Pálmason á 44:02. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir var fyrst kvenna á 43:56, önnur var Anna Berglind Pálmadóttir og á 44:01 og þriðja var Rannveig Oddsdóttir á 44:33.

Í 5 km hlaupi kom Guðlaugur Ari Jónsson fyrstu karla í mark á 20:08, annar Hjalti Jónsson á 24:24 og Einar Ingimundarson var þriðji á 24:59. Sonja Sif Jóhannsdóttir var fyrst kvenna á 26:51, önnur var Karólína Pálsdóttir á 27:07 og þriðja var Guðbjörg Vala Andrésdóttir á 27:08.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

Markir þátttakenda mættu í búningum í hlaupið og voru veitt verðlaun fyrir best klædda liðið. Sigur úr bítum í þeirri keppni báru Ananasarnir sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan.