Meistaramót Íslands 11-14 ára á Selfossi
Tobías Þórarinn Matharel var sigursæll, vann sex Íslandsmeistaratitla og setti tvö mótsmet.

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 11 til 14 ára fór fram á Selfossvelli, 23.-25. júní sl. Um 170 keppendur voru skráðir til leiks frá 15 félögum og héraðssamböndum víðs vegar af landinu. Mótið var reglulega skemmtilegt þrátt fyrir mikla rigningu, enda aðstaða á mótsstað frábær þar sem keppendur gátu leitað skjóls í Lindex-höllinni í upphitun og á milli greina.
UFA átti þar þrettán keppendur sem allir stóðu sig með prýði og bættu sig í fjölmörgum greinum. Félagið varð næst-stigahæst í flokkum 11 ára stúlkna og 14 ára pilta, þriðja stigahæst í flokki 12 ára stúlkna og fimmta stigahæsta félagið alls.
Iðkendur UFA komust 22 sinnum á verðlaunapall og hlutu níu Íslandsmeistaratitla.
- Tobías Þórarinn Matharel varð í Íslandsmeistari í 80 m grindahlaupi, 300 m grindahlaupi, hástökki, langstökki, þrístökki og spjótkasti, í öðru sæti í 80 m hlaupi og í þriðja sæti í 300 m hlaupi og kringlukasti í flokki 14 ára pilta. Hann setti auk þess meistaramótsmet í sínum flokki bæði í 80 m hlaupi og þrístökki.
- Garðar Atli Gestsson, varð öðru sæti í kringlukasti og í þriðja sæti í kúluvarpi og spjótkasti í flokki 14 ára pilta
- Kría Steinunn Hjaltadóttir, varð Íslandsmeistari í hástökki, í öðru sæti í kúluvarpi og í þriðja sæti í langstökki, í flokki 11 ára stúlkna. Hún varð auk þess Íslandsmeistari í fjölþraut, þ.e. samanlögðum stigafjölda í öllum sex greinum í flokki 11 ára stúlkna
- Lilja Sól Tulinius varð Íslandsmeistari í kúluvarpi og í þriðja sæti í spjótkasti í flokki 11 ára stúlkna
- Athena Lindeberg Maríudóttir varð í öðru sæti í hástökki og í þriðja sæti í langstökki í flokki 13 ára stúlkna
- Guðrún Hanna Hjartardóttir varð í þriðja sæti í hástökki 14 ára stúlkna.
- Sveit 14 ára pilta varð í þriðja sæti í 4x100m boðhlaupi
Frekari úrslit má nálgast hér



Myndir frá Unnari Vilhjálmssyni

