← Allar fréttir

Meistaramót Íslands 11-14 ára

Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram á Selfossi um helgina. UFA krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og eignaðist UFA þrettán nýja Íslandsmeistara. Auk þess fengum við tíu sifur medalíur og fimmtán brons. Jón Þorri setti mótsmet í langstökki 13 ára pilta þegar hann stökk 5,33 metra. Sara Ragnheiður setti mótsmet í langstökki stúlkna 12 ára þegar hún stökk 5,00 metra. Ragúel Pino setti mótsmet í 800m hlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 2:11,49 mín. Í stigakeppninni sigruðu 14 ára drengirnir okkar sinn flokk með yfirburðum en UFA lenti í öðru sæti í heildarstigakeppninni sem er frábær árangur. Til hamingju með frábæran árangur. Áfram UFA.

Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram á Selfossi um helgina. UFA krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og eignaðist UFA þrettán nýja Íslandsmeistara. Auk þess fengum við tíu sifur medalíur og fimmtán brons.

Jón Þorri setti mótsmet í langstökki 13 ára pilta þegar hann stökk 5,33 metra. Sara Ragnheiður setti mótsmet í langstökki stúlkna 12 ára þegar hún stökk 5,00 metra. Ragúel Pino setti mótsmet í 800m hlaupi þegar hann kom í mark á tímanum 2:11,49 mín.

Í stigakeppninni sigruðu 14 ára drengirnir okkar sinn flokk með yfirburðum en UFA lenti í öðru sæti í heildarstigakeppninni sem er frábær árangur.

Til hamingju með frábæran árangur.

Áfram UFA