Líf og fjör í 1. maí hlaupi (1)
Um 300 manns tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA, 200 krakkar sprettu úr spori í leik- og grunnskólahlaupi og 100 manns (börn og fullorðnir) hlupu 5 km. Naustaskóli og Þelamerkurskóli sigruðu skólakeppnina. Í 5 km hlaupi var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir fyrst kvenna á 18:52 og í karlaflokki bar Adrien-Marcel Albrecht sigur úr bítum á 18:38.

Um 300 manns tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA, 200 krakkar sprettu úr spori í leik- og grunnskólahlaupi og 100 manns (börn og fullorðnir) hlupu 5 km.
Í skólakeppninni bar Þelamerkurskóli sigur úr bítum í flokki fámennra skóla og Naustaskóli í flokki fjölmennra skóla.
Þelamerkurskóli bar sigur úr bítum í skólakeppni fámennra skóla.

Naustaskóli sigraði skólakeppni fjölmennra skóla.
Í 5 km hlaupi var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir fyrst kvenna á 18:52, önnur var Rannveig Oddsdóttir á 19:40 og þriðja var Sigríður Einarsdóttir á 22:25. Í karlaflokki bar Adrien-Marcel Albrecht sigur úr bítum á 18:38, annar var Ellert Örn Ellertsson á 18:48 og þriðji var Baldvin Ólafsson á 18:54. Tíma allra sem hlupu í 5 km hlaupinu má sjá á hlaup.is

