Líf og fjör í 1. maí hlaupi
Um 300 hlauparar á öllum aldri tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA í dag.

Um 300 hlauparar á öllum aldri tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA í dag. Leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum, grunnskólabörn 2 eða 5 km og fullorðnir gátu tekið þátt í 5 km hlaupinu líka.
Að venju fór fram skólakeppni þar sem keppt var um hlutfallslega þátttöku í flokkum fámennra og fjölmennra skóla. Giljaskóli bar sigur úr bítum í flokki fjölmennra skóla með 6,0% þátttöku, í öðru sæti var Glerárskóli með 5,9% þátttöku og í þriðja sæti var Síðuskóli með 4,3% þátttöku. Í flokki fámennra skóla (færri en 100 nemendur) var Þelamerkurskóli í fyrsta sæti með 33% þátttöku, Valsárskóli í öðru sæti með 28% þátttöku og Hlíðarskóli í þriðja sæti með 20% þátttöku.
Í 5 km hlaupinu var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir fyrst í mark á 19:39, önnur kvenna var Veronika Guseva á 23:56 og þriðja var Brynja Finnsdóttir á 24:51. Í karlaflokki var Vadim Gusev fyrstur á 20:17, Baldvin Ólafsson var annar á 20:17 og þriðji var Ellert Örn Erlingsson á 20:26. Tíma allra sem hlupu má sjá á timataka.net
Akureyri.net mætti á svæðið og fangaði stemninguna í krakkahlaupinu.

