← Allar fréttir

Landsliðshópur 2012 og Ólympíuhópur 2013

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið nýjan landsliðshóp að loknu utanhússkeppnistímabili 2012. Fimm einstaklingar úr UFA eru í hópnum. Bjarki Gíslason og Ásgerður Jana Ágústsdóttir voru valin í stökkgreinar, Rannveig Oddsdóttir í millivegalengda- og langhlaup og Kolbeinn Höður Gunnarsson og Hafdís Sigurðardóttir í sprett- og grindahlaup. Nýr Ólympíuhópur hefur einnig verið myndaður og eru þær Rannveig og Hafdís einnig í þeim hópi, Rannveig í maraþonhlaupi og Hafdís í 400m hlaupi.

Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið nýjan landsliðshóp að loknu utanhússkeppnistímabili 2012.

Fimm einstaklingar úr UFA eru í hópnum. Bjarki Gíslason og Ásgerður Jana Ágústsdóttir voru valin í stökkgreinar, Rannveig Oddsdóttir í millivegalengda- og langhlaup og Kolbeinn Höður Gunnarsson og Hafdís Sigurðardóttir í sprett- og grindahlaup.

Nýr Ólympíuhópur hefur einnig verið myndaður og eru þær Rannveig og Hafdís einnig í þeim hópi, Rannveig í maraþonhlaupi og Hafdís í 400m hlaupi.