Kosningahlaupið á Akureyri
Nú er sumarið í nánd og margir sem hafa sett markið á keppni í lengri hlaupum nú ívor og sumar. Nú hefur hópur hlaupara á Akureyri ákveðið að standa fyrir keppni íhálfmaraþonhlaupi næstkomandi laugardag, 25. apríl. Markmið hlaupsins er einkum aðgefa áhugasömum hlaupurum kost á að reyna sig í keppni og kanna stöðuna meðformlegri tímatöku eftir æfingar vetrarins. Ræst verður frá líkamsræktarstöðinniÁtaki klukkan 9:30 og hlaupið sem leið liggur 10,55 km inn í Eyjafjörð(snúningspunktur við Kristnes) og sama leið til baka. Ein til tvær drykkjarstöðvarverða á leiðinni. Keppendum býðst að nota búningsaðstöðuna í Átaki og fara í sturtuog heitan pott að hlaupi loknu.Þáttökugjald er 500 krónur sem greiðist á hlaupadag. Unnt verður að skrá sig ástaðnum frá kl. 9:00 á hlaupadegi en æskilegt er að sem flestir skrái sig meðtölvupósti á netfangið [email protected] , í síðasta lagi á hádegi á föstudag.
Nú er sumarið í nánd og margir sem hafa sett markið á keppni í lengri hlaupum nú í
vor og sumar. Nú hefur hópur hlaupara á Akureyri ákveðið að standa fyrir keppni í
hálfmaraþonhlaupi næstkomandi laugardag, 25. apríl. Markmið hlaupsins er einkum að
gefa áhugasömum hlaupurum kost á að reyna sig í keppni og kanna stöðuna með
formlegri tímatöku eftir æfingar vetrarins. Ræst verður frá líkamsræktarstöðinni
Átaki klukkan 9:30 og hlaupið sem leið liggur 10,55 km inn í Eyjafjörð
(snúningspunktur við Kristnes) og sama leið til baka. Ein til tvær drykkjarstöðvar
verða á leiðinni. Keppendum býðst að nota búningsaðstöðuna í Átaki og fara í sturtu
og heitan pott að hlaupi loknu.
Þáttökugjald er 500 krónur sem greiðist á hlaupadag. Unnt verður að skrá sig á
staðnum frá kl. 9:00 á hlaupadegi en æskilegt er að sem flestir skrái sig með
tölvupósti á netfangið [email protected] , í síðasta lagi á hádegi á föstudag.

