Kolbeinn Höður bætti íslandsmet í 200 m hlaupi
19. júlí 2013 Kolbeinn Höður Gunnarsson keppti í 200m hlaupi á EM 19 ára og yngri í dag. Hann gerði sér lítið fyrir og rann skeiðið á nýju Íslandsmeti í 18 - 19 ára flokki 21,46 sek og bætti gamla metið um 9/100 og sinn besta árangur um 14/100, en hann átti best 21,60 frá því fyrr í sumar.
Vindur var -0,2m þannig að sú spurning liggur í loftinu hvaða hraða hann getur náð í meðvindi upp á +1,8 eins og var þegar gamla metið var sett 21,55. Með þessum árangri náði Kolbeinn að komast í undanúrslit sem hlýtur að teljast magnaður árangur og verður gaman að fylgjast með honum og Anítu á morgun sunnudag. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu HÉR

