Íþróttamaður UFA - fyrsti hluti
Nú nálgast jóla og áramót og þá er tilvalið að draga saman árið og rifja upp þau afrek sem unnin hafa verið.

Það nálgast jól og áramót. Þá er tilvalið að draga saman árið og rifja upp þau afrek sem unnin hafa verið.
Ef það ætti að veita verðlaun fyrir góðar minningar, sigra á sjálfum sér og titla þá fengu allir verðlaun. Nokkrir verða teknir út og verðlaunaðir sérstaklega fyrir sín afrek og þeir fá sviðljósið hér.
Tilnefndur til íþróttakarls Akureyrar - Ágúst Bergur Kárason
Beggi átti frábært ár og varð Norðurlandameistari í 400m hlaupi í flokki 50-54 ára á tímanum 56,78 sek, á sama móti náði hann silfri í 200m hlaupi á tímanum 25,32, hástökki 1,56m og þrístökki 11,42m. Beggi setti einngi Íslandsmet í 400m hlaupi í flokki 50-54 ára á tímanum 56,26 sek. Íslandsmeistartitlar Begga í mastersflokkum voru alls 11 í spretthlaupum og stökkum. Beggi er mikil fyrirmynd fyrir meistarflokkinn þar sem hann æfir og gefur mikið af sér og mætir vel. Það er UFA heiður að tilnefna Begga til íþróttamanns Akureyrar
Tilnefnd til Íþróttakonu Akureyrar - Anna Sofia Rappich
Anna átti stórkostlegt ár og er fyrir löngu búin að sýna að íþróttaiðkun og aldur tengjast ekki neitt. Anna setti Íslands og Norðurlandamet í 60m hlaupi í flokki 60-64 ára á Norðurlandameistaramótinu í Masters þegar hún hljóp á tímanum 8,88 sek. Anna varð einng Norðulandameistari í langstökki innanhús þegar hún stökk 4,29m sem er nýtt Íslandsmet í hennar flokki. Einnig setti Anna met í stangarstökki ( 2,10m). Á utanhússtímabilinu hélt Anna áfram að raða inn afrekum. Hún náði í brons á gríðarsterku Evrópumóti á Madeira í Portúgal í langstökki á nýju aldurflokkameti (4,20m). Á sama móti varð hún í 6. sæti í 100m hlaupi á 14,93 sek en mánuði fyrir EM þá setti hún Íslandsmet í 100m á Akureyri þegar hún hljóp á tímanum 14,56 sek.
Afrek Önnu voru fleiri á árinu en langt mál að telja upp en hún er margfaldur ÍSlandsmeistari og Íslandsmethafi í 60m-100m- langstökki og Stangarstökki. UFA er í skýjunum yfir því að tilnefna Önnu til íþróttakonu Akureyrar.

