Hafdís og Kolbeinn að gera það gott í Gautaborg
Hafdís Sigurðardóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson kepptu á Gautarborgarleikunum sem fram fóru um helgina. Hafdís sigraði 100m hlaupið á 12.01s en tíminn hennar í undanrásunum var mun betri eða 11.92s. Þá sigraði hún í langstökki með stökk upp á 6.20m en hún og Nadia Akpana Assa frá Noregi stukku báðar þá lengd og var það stökk Hafdísar upp á 6.14m sem færði henni sigurinn. Hafdís varð svo í öðru sæti í 200m hlaupi á tímanum 24.07s. Kolbeinn Höður kom fyrstu í mark í 400m hlaupinu í sínum aldursflokki á tímanum 48.58s en varð fjórði í 200m hlaupi á tímanum 21.61s. Þetta er glæsilegur árangur hjá okkar fólki - til hamingju Hafdís og Kolbeinn!!!