Hafdís með Íslandsmet í langstökki
Hafdís Sigurðardóttir bætti Íslandsmetið í langstökki á 2. hluta Vormóts UFA í gær. Hafdís stökk lengst 6,54 m í mótinu og var það sigurstökk mótsins. Sá árangur verður þó ekki skráður sem Íslandsmet vegna þess að vindur var +2,1m/sek. Íslandsmet hennar 6,45 m með +1,9m/sek í vind kom í annarri umferð. Fyrra met Hafdísar í greininni var 6,41 m sett í Evrópukeppni landsliða í Tbliisi í Georgíu í fyrra.

Stökksería Hafdísar var frábær í keppninni og var sem hér segir:
1. 6,36 m ( 1,5 m/sek)
2. 6,45 m ( 1,9)
3. 6,49 m ( 2,2)
4. ógilt
5. 6,41 m ( 2,0)
6. 6,54 m ( 2,1)
Þess má geta að HM lágmark í langstökki kvenna fyrir Peking í ágúst 2015 er 6,70m og ÓL lágmark fyrir Ríó 2016 er 6,70m.
Innilega til hamingju Hafdís
Önnur úrslit má finna hér http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2461.htm