← Allar fréttir

Hafdís bætti Íslandsmetið sitt um 5cm á MÍ í fjölþrautum

Hafdís Sigurðardóttir bætti Íslandsmet sitt í langstökki kvenna um 5cm í dag þegar hún stökk 6,45m í langstökki á MÍ í fjölþrautum. Einungis 23 dagar eru síðan hún bætti 11 ára gamalt met Sunnu Gestsdóttur um 12 cm og því greinilegt að Hafdís er í hörkuformi þessa dagana. Hafdís, sem aldrei hefur áður keppt í fimmtarþraut, varð í dag Íslandsmeistari í greininni með 3805stig. Ásgerður Jana varð í öðru sæti með 3512 stig sem er 122 stiga bæting hjá henni. Stefán Þór Jósefsson og Snorri Eldjárn Hauksson kepptu í sjöþraut karla. Stefán Þór varð þriðji með 4249stig en það er bæting hjá honum um 376 stig. Snorri Eldjárn hafnaði í 4 sæti með 3322 stig en hann var að keppa í fyrsta skiptið í sjöþraut. Árangur okkar fólks var eftirfarandi:

Hafdís Sigurðardóttir bætti Íslandsmet sitt í langstökki kvenna um 5cm í dag þegar hún stökk 6,45m í langstökki á MÍ í fjölþrautum. Einungis 23 dagar eru síðan hún bætti 11 ára gamalt met Sunnu Gestsdóttur um 12 cm og því greinilegt að Hafdís er í hörkuformi þessa dagana. Hafdís, sem aldrei hefur áður keppt í fimmtarþraut, varð í dag Íslandsmeistari í greininni með 3805stig. Ásgerður Jana varð í öðru sæti með 3512 stig sem er 122 stiga bæting hjá henni. Stefán Þór Jósefsson og Snorri Eldjárn Hauksson kepptu í sjöþraut karla. Stefán Þór varð þriðji með 4249stig en það er bæting hjá honum um 376 stig. Snorri Eldjárn hafnaði í 4 sæti með 3322 stig en hann var að keppa í fyrsta skiptið í sjöþraut.

Árangur okkar fólks í einstökum greinum var eftirfarandi:

Hafdís hljóp 60m grind á 8,80s sem er bæting hjá henni, stökk 1,41m í hástökki, varpaði kúlunni 9,45m, stökk 6,45m í langstökki og setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í leiðinni og hljóp loks 800m á 2:18,40s.

Ásgerður Jana hljóp 60m grind á 9,36s, stökk 1,68m í hástökki sem er hennar besti árangur innanhúss, varpaði kúlunni 11,03m, stökk 5,18m í langstökki og hljóp 800m á 2:34,28 sem er hennar besti tími til þessa.

Stefán Þór hljóp 60m á 7,99s, stökk 5,89m í hástökki, varpaði kúlunni 10,71m, stökk 1,86m í hástökki sem er 6cm bæting hjá honum. Þá hljóp hann 60m grind á 9,67s, stökk 3,80m í stangarstökki og hljóp 1000m á 2:51,55s sem er bæting hjá honum.

Snorri Eldjárn hljóp 60m á 7,74s, stökk 5,03m í langstökki, varpaði kúlunni 10,30m, stökk 1,68m í hástökki. Þá hljóp hann 60m grind á 10,96s, stökk 2,90m í stangarstökki og hljóp 1000m á 3:11,31s.

Mikið um bætingar hjá okkar fólki og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn!!!