Grunnskólamót UFA - 2026
Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 19. - 22. maí. Mikið fjör var í Boganum þar sem um 1.000 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbæjar var boðið að koma að keppa í frjálsum íþróttum.

Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 19. - 22. maí. Mikið fjör var í Boganum þar sem um 1.000 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbæjar var boðið að koma að keppa í frjálsum íþróttum, auk þeirra bættist Þelamerkurskóli í hópinn, mætti einn daginn, og veitti stærri skólunum góða samkeppni.
Keppt var í spretthlaupi, hringhlaupi, langstökki, boðhlaupi og reipitogi. Mikið kapp var í krökkunum, allir stóðu sig mjög vel, bæði í keppni og í stuðningsmannaliðum, og vonandi höfðu sem flestir gaman af.
Bæði var um að ræða einstaklingskeppni og keppni milli skóla í hverjum árgangi. Efstu 10 krökkum í hverri grein er boðið að æfa frítt með UFA út júní og fengu þeir afhent sérstakt viðurkenningarskjal.
Glerárskóli vann stigakeppnina hjá 4. bekk, en Lundarskóli hjá 5., 6. og 7. bekk.
Lundarskóli vann einnig heildarstigakeppnina, líkt og í fyrra.
UFA og skólarnir hjálpuðust að við að halda mótið. Til viðbótar við þjálfara og aðra liðsmenn UFA þá komu góðir hópar krakkar úr 8-10. bekkjum til mælinga ásamt því að íþróttakennarar og aðrir starfsmenn skólann gripu í mælingar/skráningu og önnur tilfallandi verkefni þegar á þurfti að halda. Við hjá UFA viljum þakka skólunum fyrir samstarfið um þetta mót sem er virkilega skemmtilegt og gefandi. UFA þakkar einning Akureyrarbæ og Heilsueflandi samfélagi fyrir styrk til að halda mótið.
Gaman væri ef sem flestir krakkar kæmu að æfa frjálsar íþróttir með UFA í sumar, búið er að birta sumaræfingatöfluna hér, en hún gildir frá og með 8. júní nk. Fram að því gildir vetrar-/voræfingataflan, sem skoða má hér.
Sumarleikar HSÞ verða haldnir 5.-7. júní nk. og gaman væri að mæta með stóran og góðan hóp af nýjum iðkendum þangað, mótin hjá HSÞ eru oft einhver skemmtilegustu mót sumarsins. Nánari upplýsingar um mótið má finna hér: https://fri.is/wp-content/uploads/2026/03/Sumarleikar-2026-bodsbref.pdf athugið að skráningarfrestur er til þriðjudagskvöldsins 3. júní kl. 22, ekki er hægt að skrá sig á staðnum.
Nokkrar svipmyndir frá Grunnskólamótinu:

















