Grunnskólamót UFA - 2025
Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 20. - 23. maí. Mikið fjör var í Boganum þar sem um 1.100 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbæjar var boðið að koma að keppa í frjálsum íþróttum.

Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 20. - 23. maí. Mikið fjör var í Boganum þar sem um 1.100 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbæjar var boðið að koma að keppa í frjálsum íþróttum, auk þeirra bættist Þelamerkurskóli í hópinn, mætti einn daginn, og veitti stærri skólunum góða samkeppni.
Keppt var í spretthlaupi, hringhlaupi, langstökki, boðhlaupi og reipitogi. Mikið kapp var í krökkunum, allir stóðu sig mjög vel, bæði í keppni og í stuðningsmannaliðum, og vonandi höfðu sem flestir gaman af.
Bæði var um að ræða einstaklingskeppni og keppni milli skóla í hverjum árgangi. Efstu 10 krökkum í hverri grein er boðið að æfa frítt með UFA út júní og fengu þeir afhent sérstakt viðurkenningarskjal. Keppni milli skólanna var hörð og í einhverjum tilfellum réðust úrslit um stigahæsta skólann ekki fyrr en í síðustu greinum.
Lundaskóli vann í árgangakeppnum allra daganna og því í heildarstigakeppninni, líkt og í fyrra.
UFA og skólarnir hjálpuðust að við að halda mótið. Til viðbótar við þjálfara og aðra liðsmenn UFA þá komu góðir hópar krakkar úr 8-10. bekkjum til mælinga ásamt því að íþróttakennarar og aðrir starfsmenn skólann gripu í mælingar/skráningu og önnur tilfallandi verkefni þegar á þurfti að halda. Við hjá UFA viljum þakka skólunum fyrir samstarfið um þetta mót sem er virkilega skemmtilegt og gefandi. UFA þakkar einning Akureyrarbæ og Heilsueflandi samfélagi fyrir styrk til að halda mótið.
Gaman væri ef sem flestir krakkar kæmu að æfa frjálsar íþróttir með UFA í sumar, búið er að birta sumaræfingatöfluna hér, en hún gildir frá og með 2. júní nk. Fram að því gildir vetrar-/voræfingataflan.
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fyrir aldurshópinn 11-14 ára verður haldið á í Reykjavík helgina 14.-15. júní nk. og gaman væri að mæta með stóran og góðan hóp þangað. Nánari upplýsingar um mótið má finna hér: https://fri.is/motaskra/meistaramot-islands-11-14-ara-7/
Nokkrar svipmyndir frá mótinu:






