Grunnskólamót UFA
Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 18.-20. maí sl.

Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 18.-20. maí sl. Vegna smitvarna var það minna í sniðum en verið hefur, en öllum börnum í 4. bekk grunnskólanna á Akureyri var boðið að taka þátt. Keppt var í spretthlaupi, hringhlaupi, langstökki, boðhlaupi og reipitogi. Allir keppendur stóðu sig mjög vel og var framkoma barnanna til fyrirmyndar. Við hjá UFA viljum þakka skólunum fyrir samstarfið um þetta mót sem er virkilega skemmtilegt og gefandi. Efstu 10 í hverri grein verður boðið að æfa frítt með UFA til 10. júní nk. og fá þeir afhent sérstakt viðurkenningarskjal á næstu dögum.

