← Allar fréttir

Götuganga virkra efri ára

Góður hópur 60 ára og eldri tók í gær þátt í Götugöngu virkra efri ára. Gleði og kraftur einkenndi göngugarpana!

Í gær, laugardaginn 7. október var Götuganga virkra efri ára haldin hér á Akureyri í fyrsta sinn. Gleði og kraftur einkenndi þá 50 göngugarpa sem mættu við Hof og gengu ýmist 2,5 km eða 5 km.

Héðinn Svarfdal bauð alla velkomna, Unnar Vilhjálmsson stjórnaði skemmtilegri upphitun og ræsti keppendur. Nokkur sunnan strekkingur var á gönguleiðinni en göngugarpar létu það ekki á sig fá heldur gengu sem leið lá suður eftir göngustígnum að snúníngspunkti og aftur til baka.

  • Elsa Baldvinsdóttir kom fyrst í mark eftir 2,5 km gönguna, hún var 18 mínútúr og 50 sekúndur á leiðinni.
  • Karl Guðmundsson kom fyrstur í mark eftir 5 km gönguna, hann var 40 mínútur og 6 sekúndur á leiðinni.
  • Önnur úrslit má finna hér

Allir þátttakendur fengu hressingu frá MS að göngu lokinni, frímiða í sund í Akureyrarlaug og bol/brúsa/endurskinsmerki merkt "Virk efri ár" frá Akureyrarbæ. Auk þessa fengu nokkrir þátttakendur útdráttarvinninga frá MS, Hofi, Sundlaug Akureyrar, Listasafninu, Akureyrarbæ og Minjasafninu, kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Sjálfboðaliðar frá Ungmennafélagi Akureyrar stóðu vaktina við afhendingu keppnisgagna, tímamælingar og við að vísa þátttakendum leiðina, með brosi á vör. Undanfarar fóru á undan hvorum hóp á hjóli, eftirfarar gættu þess að enginn yrði skilinn eftir. Brautarverðir gættu þess að göngufólk kæmist klakklaust yfir umferðargötur og að snúið væri við á réttum stað. Frábært er að eiga að góðan hóp sjálfboðaliða til koma viðburðum sem þessum í framkvæmd og gera það vel.

Akureyrarbær - Virk efri ár og Heilsueflandi Samfélag og Ungmennafélag Akureyrar stóðu að viðburðinum, með góðum styrk frá ÍSÍ #BEACTIVE

Akureyri.net mætti á svæðið, tók myndir og skrifaði frétt, bæði hér og hér.

Myndband af upphafi göngu - 5 km hópurinn