← Allar fréttir

Góður árangur á MÍ 15-22 ára á Kópavogsvelli

Helgina 9.-11. júní fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. UFA átti sjö öfluga keppendur á mótinu sem allir stóðu sig með sóma.

Helgina 9.-11. júní fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Mótið var haldið á Kópavogsvelli.

UFA átti sjö öfluga keppendur á mótinu sem allir stóðu sig með sóma. Áunnu keppendur sér sex íslandsmeistaratitla fimm silfurverðlaun, fjögur brons. Árangur þeirra Elenu í spjótkasti og Brynjars Páls í langstökki (6,00m) skilaði þeim í úrvalshóp hjá FRÍ.

  • Alexander Breki Jónsson keppti í flokki 16-17 ára og vann til silfurverðlauna í kúluvarpi og bronsverðlauna í spjótkasti.
  • Aþena Björk Ómarsdóttir vann til bronsverðlauna í spjótkasti í flokki 18-19 ára.
  • Elena Soffía Ómarsdóttir varð Íslandsmeistari í spjótkasti í flokki 16-17 ára og vann til bronsverðlauna í kúluvarpi.
  • Brynjar Páll Jóhannsson varð Íslandsmeistari þremur greinum í flokki 15 ára, í 80 m hlaupi, 300 m hlaupi og langstökki. Auk þess vann hann til bronsverðlauna í hástökki.
  • Pétur Friðrik keppti í fjórum greinum í flokki 15 ára og bætti sig vel í 200 m hlaupi.
  • Róbert Mackay varð Íslandsmeistari í tveimur greinum í flokki 16-17 ára, 200 m hlaupi og 400 m hlaupi. Auk þess vann hann til silfurverðlauna í 100 m hlaupi og 110 m grindahlaupi.
  • Sigurlaug Anna Sveinsdóttir vann til silfurverðlauna í tveimur greinum í flokki 18-19 ára, 400 m hlaupi og langstökki.

Heildarúrslit mótsins og árangur keppenda má sjá hér:
http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00001138

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára

Myndir frá FRÍ (Flickr) og Sindra Lárussyni þjálfara