← Allar fréttir

Góðir tímar í Hausthlaupi UFA

Vel viðraði á hlaupara í Hausthlaupi UFA sem fram fór seinni partinn í gær. Stillt veður og vænlegt til góðra bætinga enda náðu margir sínum besta árangri til þessa í hlauinu.

Hlaupinn var 10 km hringur frá Átaki sama leið og í Akureyrarhlaupinu. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstu í mark á persónulegu meti 31:24 sem jafnframt mun vera þriðji besti tími íslendings í greininni. Ármann Eydal Albertsson var annar á 31:57 og þriðji var Sævar Helgason á 37:52. Fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 43:07, önnur var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 45:00 og þriðja var Rakel Káradóttir á 46:06.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.