Glæsilegur árangur keppenda UFA á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í frjálsum
Iðkendur UFA áunnu sér níu íslandsmeistaratitla fimm silfurverðlaun og þrjú brons.

Helgina 28. – 29. janúar fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Mótið var haldið í Frjálsíþróttahúsi FH í Kaplakrika.
UFA átti sex öfluga keppendur á mótinu, þó tvísýnt hafi verið með ferðaveður á föstudeginum fyrir mótið. Áunnu keppendur sér níu íslandsmeistaratitla fimm silfurverðlaun, þrjú brons auk fjölmargra persónulegra bætinga.
- Birnir Vagn Finnsson varð Íslandsmeistari í fjórum greinum í flokki 20-22 ára, 60 m hlaupi og 60 m grindahlaupi, langstökki og hástökki. Auk þess vann hann til silfurverðlauna í 200 m hlaupi og bronsverðlauna í kúluvarpi.
- Tjörvi Leó Helgason keppti í þremur greinum í flokki 18-19 ára og bætti fyrri árangur sinn bæði í 60 m hlaupi og langstökki.
- Róbert Mackay varð Íslandsmeistari í tveimur greinum í flokki 16-17 ára, 60 m grindahlaupi og 400 m hlaupi. Auk þess vann hann til silfurverðlauna í 60 m og 200 m hlaupi.
- Alexander Breki Jónsson varð Íslandsmeistari í kúluvarpi 16-17 ára.
- Brynjar Páll Jóhannsson varð Íslandsmeistari tveimur greinum í flokki 15 ára. Þ.e. í 60 m hlaupi og langstökki. Auk þess vann hann til silfurverðlauna í þrístökki og bronsverðlauna í 300 m hlaupi og hástökki.
- Pétur Friðrik vann til silfurverðlauna í þrístökki í flokki 15 ára, auk þess sem hann bætti sig í öllum fimm greinunum sem hann keppti í.
Keppendur UFA voru til mikils sóma og framtíðin er sannarlega björt hjá þessum öfluga hópi.
Heildarúrslit mótsins og árangur keppenda má sjá hér:
http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00001022
Frétt FRÍ um mótið má sjá hér: https://fri.is/thrju-motsmet-i-kaplakrika-um-helgina/



Myndir: Unnar Vilhjálmsson

