← Allar fréttir

Glæsilegur árangur keppenda frá UFA á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í frjálsum.

-Birnir Vagn Finnsson varð sjöfaldur Íslandsmeistari í flokki 18-19 ára og setti mótsmet í 110 m grind.

Birnir Vagn Finnsson varð sjöfaldur Íslandsmeistari í flokki 18-19 ára og setti mótsmet í 110 m grind. Sló þar met sem staðið hefur síðan 1970.

Helgina 22.-23. júlí fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum 15-22 ára á ÍR vellinum við Mjóddina í Reykjavík. Völlurinn er nýr og aðstaða til keppni mjög góð. Veðrið var til fyrirmyndar að þessu sinn og keppendum í hag, frekar milt og oftast hagstæður vindur.

UFA átti þar átta vaska keppendur, Alexander Breka Jónsson, Árnýju Helgu Birkisdóttur, Birnir Vagn Finnsson, Elenu Soffíu Ómarsdóttur, Pétur Friðrik Jónsson, Róbert Mackay, Sigurlaugu Önnu Sveinsdóttur og Tjörva Leó Helgason.

UFA eignaðist 12 Íslandsmeistara á mótinu. Silfur og bronsverðlaun voru samtals 15.

Alexander Breki Jónsson vann til gullverðlauna í kúluvarpi í flokki 16-17 ára og silfur í spjótkasti.

Aþena Ómarsdóttir keppti í spjótkasti í flokki 18-19 ára og varð þar fjórða sæti og bætti sinn persónulega árangur.

Árný Helga Birkisdóttir varð í sjötta sæti í spjótkasti í flokki 15 ára, og bætti sinn persónulega árangur þar, í kringlukasti varð hún í sjöunda sæti einnig með bætingu á persónulegum árangri og í kúluvarpi varð hún í áttunda sæti aftur á bætingu á sínum árangri.

Birnir Vagn Finnson gerði sér lítið fyrir og vann til sjö gullverðlauna í flokki 18-19 ára, í 110 m grind, 400 m grind, hástökki, langstökki, þrístökki, sleggjukasti og spjótkasti. Hann vann silfur í 100 m hlaupi, 800 m hlaupi, kúluvarpi og kringlukasti. Með árangri hans varð UFA stigahæst í þessum aldursflokki pilta og var hann þar einn að verki. Glæsilegur árangur hjá Birni.

Elena Soffía Ómarsdóttir vann til tvennra gullverðlauna í flokki 15 ára, í kúluvarpi og spjótkasti.

Pétur Friðrik Jónsson vann til silfurverðlauna í flokki 15 ára í þrístökki og langstökki.

Róbert Mackay vann til gullverðlauna í 400 m hlaupi í flokki 16-17 ára, silfur í 100 m hlaupi og 110 m grindahlaupi, auk brons í 200 m hlaupi.

Sigurlaug Anna Sveinsdóttir vann til gullverðlauna í 400 m hlaupi í flokki 16-17 ára og brons í 200 m hlaupi og kúluvarpi.

Tjörvi Leó Helgason vann til bronsverðlauna í þrístökki í flokki 16-17 ára.

Margir áttu persónulegar bætingar, keppendur UFA voru til mikils sóma og framtíðin er sannarlega björt hjá þessum fríða hópi ungmenna hjá UFA.

Heildarúrslit mótsins og árangur keppenda má sjá hér: http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00000955

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára Myndir frá FRÍ

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára MÍ 15-22 ára

MÍ 15-22 ára

Myndir frá Elsu Maríu Guðmundsdóttir